Nú er eigandi Bókabúðarinnar kátur með útlitið en hefur áhyggjur af viðhaldi á vefnum.
Loka verkefnið (í bili) er að setja upp tól og koma verkefninu fyrir á GitHub fyrir þá vefforritara sem taka við í framtíðinni.
Útlit skal vera það sama og í verkefni 5
Verkefnið skal innihalda package.json
og package-lock.json
sem innihalda öll notuð tól.
Þegar verkefnið er sótt verður npm install
keyrt á undan öllum öðrum skipunum.
Setja skal upp node-sass, browser-sync, stylelint og concurrently til að nýta Sass og geta gert breytingar sem sjást strax í vafra.
Skipta skal CSS upp í mismunandi skrár undir styles/
, sjá viðeigandi komment í hverju og einu skjali.
Í styles/config.scss
skal geyma allar stillingar fyrir verkefni og nota þær á viðeigandi stöðum.
Nota skal nesting en aðeins upp á eitt level.
.book {
.title {
// ok
.item {
// ekki ok, þriðja level
}
}
}
Þegar skipunin npm run dev
er keyrð skal verkefnið keyra upp vefþjón með browser-sync, þýða sass skrár og fylgjast með breytingum á HTML og Sass.
Setja skal upp stylelint með stylelint-config-sass-guidelines
og stylelint-config-standard
.
Þegar skipunin npm run lint -s
er keyrð skal keyra stylelint með þessum reglum og ættu engar villur að koma fram.
Búa skal til Git repo fyrir verkefni og færa yfir á GitHub. Til að passa upp á samræmi eru skrárnar .gitignore
, .gitattributes
og .editorconfig
gefnar. Sækja skal plugin til að tekið sé tillit til .editorconfig
, t.d. EditorConfig for VS Code.
- 40% – CSS flutt yfir í Sass skv forskrift
- 40% – stylelint uppsett og engar villur skv forskrift
- 10% – browser sync og concurrently sett upp og virkar skv forskrift
- 10% – Verkefni skilað á GitHub
Verkefni sett fyrir í fyrirlestri mánudaginn 5. október 2020.
Skila skal í Canvas í seinasta lagi fyrir lok dags þriðjudaginn 13. október 2020.
Skilaboð skulu innihalda slóð á GitHub repo fyrir verkefni, og dæmatímakennurum skal hafa verið boðið í repo (sjá leiðbeiningar). Notendanöfn þeirra eru:
GaddiSunshine
boxandri
StimmiKex
jonnigs
Tobbasn
- ``
Hver dagur eftir skil dregur verkefni niður um 10%, allt að 30% ef skilað föstudaginn 16. október 2020 en þá lokar fyrir skil.
Sett verða fyrir tíu minni verkefni þar sem átta bestu gilda 5% hvert, samtals 40% af lokaeinkunn.
Sett verða fyrir tvö hópverkefni þar sem hvort um sig gildir 10%, samtals 20% af lokaeinkunn.
Útgáfa 0.1